Logos lögmannsþjónusta hefur sent Ríkisútvarpinu (RÚV) bréf þar sem fram kemur að Skjárinn muni innan skamms leggja fram kröfu um umtalsverðar skaðabætur „vegna ólögmætra aðgerða RÚV á auglýsingamarkaði,“ eins og það er orðað í bréfi til RÚV.

Samkvæmt upplýsingum frá Skjánum mun Skjárinn krefjast þess að RÚV láti án tafar af háttsemi sinni en einnig lýsir Skjárinn ennfremur fullri ábyrgð á hendur RÚV vegna fjárhagslegs tjóns af völdum ólögmætra aðgerða stofnunarinnar.

Þá mun Skjárinn krefja RÚV um fullar skaðabætur vegna alls þess tjóns sem félagið telur aðgerðir RÚV hafa valdið og kunna að valda.

Í bréfinu er því haldið fram að RÚV hafi boðið til sölu auglýsingar á verði sem er langt undir gjaldskrá stofnunarinnar en RÚV hafi enga heimild til að víkja frá umræddri gjaldskrá.

Þá segir í bréfinu að tilboðin séu augljóslega sett fram með þeim skýra ásetningi að útiloka keppinauta frá markaði, þ.m.t. SkjáEinn. Sé slík háttsemi skýrt brot á samkeppnislögum og lögum um RÚV og hafi þegar valdið Skjánum gríðarlegu tjóni.