Baugur, bresku athafnamennirnir Tom Hunter og Nick Leslau og Bank of Scotland eiga í viðræðum við fjárfestingasjóðina Apax Partners og Nordic Capital um að kaupa 21 spítalabyggingu í Bretlandi fyrir 730 milljónir punda, sem samsvarar rúmlega 97 milljörðum króna.
Breska dagblaðið Times greindi frá þessu á sunnudaginn, en í síðustu viku sagði Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í samtali við Viðskiptablaðið að það stæði til að stofna fasteignasjóðinn LXB III.
Baugur stofnaði fasteignasjóðina LXB I og LXB II í samvinnu við Hunter, Leslau og Bank of Scotland en seldi flestar eignir LXB II fyrr á þessu ári.
Apax og Nordic Capital samþykktu að kaupa fasteignir sænska heilbrigðisrekstrarfélagsins Capio fyrir 1,2 milljarða punda í síðasta mánuði og eru Baugur og samstarfsaðilar í virðræðum um að kaupa hluta þess eignasafns.