Erlendir fjárfestar hafa nú til skoðunar byggingu lúxushótels á Þengilhöfða, sunnan við Grenivík. Forsvarsmenn verkefnisins hafa fundað með sveitarstjórnarfólki í Grýtubakkahreppi á undanförnum vikum vegna málsins. Á hótelinu er stefnt á að bjóða upp á afþreyingartengda ferðamennsku, þar með talið þyrluskíðaferðir. Íslenska félagið Viking Heliskiing ehf. vinnur að verkefninu með erlenda félaginu NIHI hótels. Björgvin Björgvinsson, annar stofnenda Viking Heliskiing, segir verkefnið komið afar skammt á veg. „Þetta er á algjörlegu byrjunarstigi,“ segir Björgvin en það gæti skýrst betur á næstu vikum.
Forstjóri NIHI er hinn suðurafríski James McBride, sem hefur verið áberandi í hótelrekstri víða um heim undanfarna áratugi. Í nýlegu viðtali á ráðstefnunni Skift Global Forum 2018 nefndi McBride að Ísland væri einn þeirra staða þar sem hann væri að skoða mögulega uppbyggingu. „Ég hef mikinn áhuga á Íslandi. Ég hef farið þangað tvisvar eða þrisvar, í þyrluskíðaferðir og laxveiði. Mér finnst Ísland heillandi staður,“ sagði McBride. NIHI hotel reka í dag hótel á eyjunni Sumba í Indónesíu sem ferðavefurinn Travel+Leisure valdi það besta í heimi árin 2016 og 2017.
Vinna málið í rólegheitum
Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi, segir málið afar skammt á veg komið og ekkert sé fast í hendi. „Við erum bara búin að vera að vinna að þessu í rólegheitum og höldum því áfram,“ segir Þröstur.
Grýtubakkahreppur auglýsti í vor eftir samstarfsaðilum um afnot af landi hreppsins til þyrluskíðamennsku eftir árið 2021. Félagið Bergmenn ehf. hefur einkarétt á þyrluskíðaferðum í landi sveitarfélagsins fram til þess tíma. Bergmenn og Heliskiing óskuðu bæði eftir samstarfi og sendu inn hugmyndir að uppbyggingu í vor. Sveitarstjórnin taldi hvorugt fyrirtækið hafa skilað inn tillögum sem væru fullnægjandi. Í kjölfarið hafi nýir aðilar komið að verkefninu.
Í lok september samþykkti sveitarstjórn Grýtubakkahrepps svo að innleysa land á norðvestanverðum Þengilhöfða úr erfðafestuleigu og fól sveitarstjóra að ganga til samninga við leiguhafa á Þengilhöfða. Þröstur segir að verið sé að gera breytingar á aðalskipulagi sem snúi aðallega að breyttri landnotkun, einkum vegna uppbyggingarmöguleika í ferðaþjónustu.
Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér . Meðal annars efnis í blaðinu er:
- Umfjöllun um rekstrarumhverfi leigufélaganna.
- Höfnun borgarstjórnarmeirihlutans á að lækka fasteignaskatta er skoðuð.
- Viðtal við Li Schooland en hún upplifði menningarbyltinguna í Kína.
- Úttekt á kröfum verkalýðsfélaganna fyrir komandi kjaraviðræður.
- Umfjöllun um lögmæti vefsíðunnar tekjur.is
- Viðtal við Andrés Magnússon, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu.
- Greinendur telja Símann metin langt undir markaðsgengi.
- Fjallað er um fyrirhugaða sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins.
- Óðinn skrifar um innflæðishöftin og Seðlabankann.
- Huginn og Muninn eru á sínum stað.
- Týr fjallar tvískinnung Pírata.