HS Orka, Kaupfélag Skagfirðinga og Fóðurblandan hyggjast rannsaka hagkvæmni þess að reisa verksmiðju til framleiðslu á tilbúnum áburði og hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis.

Í fréttatilkynningu segir að samstarfið feli í sér að framleiða „Kjarna” (NH4NO3) hér á landi til þess að uppfylla innanlandsþarfir fyrir tilbúinn áburð í föstu formi fyrir bændur og aðra sem þarfnast hans til ræktunar.

Fram kemur að innanlandsmarkaður fyrir tilbúinn áburð sé um 45-50 þúsund tonn á ári og árleg innanlandsþörf fyrir aðalfrumefnið, köfnunarefni (N), er 10 þúsund tonn. Því er gert ráð fyrir að framleiða þurfi 30 þúsund tonn af Kjarna til að fá þetta magn af köfnunarefni.

Einnig verður greint útflutningsmöguleika á Kjarna. Ef hagkvæmnisathugun leiðir í ljós að rekstur áburðarframleiðslu sé líklega arðbær munu aðilar taka næstu skref, en gert er ráð fyrir að hagkvæmniathuguninni verði lokið í september á þessu ári.

„Markmið samstarfsins er að taka þátt í innviðauppbyggingu í landinu, auka öryggi íslenskrar matvælaframleiðslu, kanna útflutningsmöguleika á áburði sem framleiddur er með grænni orku og á sama tíma styrkja grunnstarfsemi aðila,“ segir í tilkynningunni.

Eyjólfur Sigurðsson, forstjóri Fóðurblöndunnar:

„Þetta gefur okkur möguleika á að framleiða áburð með grænni orku og minnka með því kolefnisspor í íslenskum landbúnaði. Við erum háð óviðráðanlegum aðstæðum í löndunum í kringum okkur og þurfum því að auka sjálfstæði okkar í áburðarframleiðslu og nýta íslenska þekkingu til byggja upp íslenska framleiðslu.“

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku :

„Við munum líta sérstaklega til þeirra möguleika sem felast í því að nýta aukaafurðir og verðmætastrauma frá öðrum fyrirtækjum í Auðlindagarði okkar, svo og hvort framleiðslan sjálf gæti nýst öðrum fyrirtækjum á svæðinu.  Þannig myndi verkefnið styðja bæði við innlenda hráefnisnotkun og við hringrásarhagkerfi svæðisins.“