Kynna á framkvæmdir við nýja menningarmiðju Úlfársdals í kvöld, en skóli, bókasafn, sundlaug og önnur íþróttamannvirki munu rísa þar. Tíma- og kostnaðaráætlun verkefnisins var á dagskrá borgarráðs í dag. Framkvæmdirnar í Úlfarsárdal eru stærsta framkvæmd borgarinnar næstu árin og mun framkvæmdakostnaður nema um 10 milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Í kvöld mun Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, kynna framkvæmdir á opnum fundi með íbúum Grafarholts og Úlfarsárdals í kvöld.

Auk nýjustu frétta af framkvæmdaáætlun hinna nýju mannvirkja verður sagt frá öðrum verkefnum og farið yfir viðhorf íbúa til þjónustunnar í hverfinu.