Facebook síða hefur verið sett upp þar sem skorað er á Guðrúnu Hafsteinsdóttur , markaðsstjóra Kjöríss og formann Samtaka iðnaðarins, að bjóða sig fram til forseta Íslands. Þegar þetta er ritað hafa 216 manns líkað við síðuna.

Guðrún segir hins vegar í samtali við Viðskiptablaðið að hún hafi aldrei leitt hugann að þessu embætti og að hún muni ekki bjóða sig fram.

„Ég held helst að þarna sé á ferðinni grín frá vinum mínum,“ segir Guðrún.