Bandalag Háskólamanna (BHM) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem bandalagið lýsir áhyggjum af nýjum úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Segja þau reglurnar takmarka möguleika námsfólks til að afla sér menntunar utan landsteinanna.

BHM bendir á að nýju reglurnar, sem mennta- og menningarmálaráðherra hefur staðfest, feli í sér allt að 20% skerðingu á framfærslulánum til námsmanna erlendis á skólaárinu 2016–17. Frekari skerðing sé boðuð á næsta skólaári. BHM tekur því undir með Sambandi íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) sem hefur bent á að með nýju úthlutunarreglunum hafi fólk sem stundar nám erlendis orðið fyrir forsendubresti.

BHM segir forsendubrest hafa orðið. Fólk hafi tekið ákvörðun um nám erlendis og gert áætlanir um það á grundvelli fyrri reglna en sjái nú fram á breyttar aðstæður. Framkoma sjóðsins gagnvart þessum hópi sé óviðunandi.

Bandalagið skorar á stjórn LÍN að afturkalla þá skerðingu sem nýju úthlutunarreglurnar fela í sér. Hætta er á að fjöldi námsmanna erlendis hrökklist frá námi vegna hennar. Slíkt yrði til mikils skaða fyrir íslenskt samfélag enda hefur sú fjölbreytta þekking sem námsmenn hafa í áranna rás aflað sér utan landsteinanna skilað því miklum ávinningi.