Hlutabréfamarkaðir í Evrópu lækkuðu skarpt við opnun í morgun. Breska hlutabréfavísitalan
FTSE
100 hafði lækkað um 6,4% núna rétt fyrir klukkan 10. Þýska vísitalan
DAX
hafði lækkað um 7,5% og franska vísitalan
CAC
40 um tæp 8,7%. Ítalska vísitalan
FTSE
MIB
hafði lækkað um 8,4%.
Euro
Stoxx
50 vísitalan, sem samanstendur af 50 evrópskum stórfyrirtækjum, hafði lækkað 7,9% nú rétt fyrir klukkan 10.
Á fjármálamarkaði er beðið eftir að markaðir opni vestanhafs en í gærkvöldi tilkynnti Seðlabanki Bandaríkjanna að stýrivextir yrðu lækkaðir úr 1-1,25% í 0-0,25%. Ennfremur var tilkynnt um 700 milljarða dala – um 95 þúsund milljarðar króna innspýtingu í fjármálakerfið.