Hagmunaaðilar á Íslandi hafa gagnrýnt harðlega að ekki sé lögð meiri áhersla á eflingu erlendrar fjárfestingar hér á landi og uppbyggingu gagnavera á sama tíma og gríðarleg áhersla virðist vera lögð á málaflokkinn í nágrannaríkjum okkar.

Óbirt skýrsla sem unnin var upp úr viðtölum sem tekin voru við gagnaversaðila sýnir að fyrirtækin veigra sér við því að koma með viðskipti sín hingað til lands vegna skorts á gagnatengingum við landið. Verkefnastjóri hjá Íslandsstofu segir gagnastrengi við landið eins og hverja aðra innviði sem krafa er gerð um í nútímaumhverfi gagnavera.

Þrjú og hálft stöðugildi við að markaðssetja Ísland

Samtök iðnaðarins (SI) eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt íslensk stjórnvöld þegar kemur að gagnaverauppbyggingu hér á landi. Í skýrslu sem tekin var saman af samtökunum og ber nafnið: Nauðsyn bættra fjarskiptatenginga og hagræn áhrif gagnavera kemur m.a. fram að ráðgjafarfyrirtækið Broad Group spái miklum vexti í norræna gagnaveraiðnaðinum á næstu árum. Þannig er því t.d. spáð að gagnaveraiðnaður Danmerkur muni á tveimur árum ríflega fjórfaldast í umfangi. Hins vegar er gert er ráð fyrir litlum sem engum vexti á íslenskum gagnaveraiðnaði fram til loka ársins 2017.

Samkvæmt SI er það sem skilur Ísland að frá nágrannaþjóðum sínum í þessu tilliti það að stjórnvöld í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi standa okkur framar í verkefnum sem snúa að innviðum og starfsumhverfi gagnavera.

Einar Hansen Tómasson, verkefnastjóri erlendrar fjárfestingar hjá Íslandsstofu, er meðal þeirra sem hafa verið að sinna slíku markaðsstarfi fyrir hönd íslenskra stjórnvalda en auk þess hefur Landsvirkjun einnig verið að vinna að sambærilegum málum.

„Á Íslandsstofu eru þrjú og hálft stöðugildi sem hafa það hlutverk að laða til landsins erlenda fjárfestingu. Hvort það nægir verður bara hver að dæma um en við gerum okkar besta. Helmingurinn af starfi mínu undanfarin 13 ár hefur verið að laða til landsins erlenda sjónvarps- og kvikmyndagerðarmenn. Ég myndi giska á að um 25-30% af starfinu fari svo í vinnu tengdri gagnaverunum og svo restin í önnur verkefni,“ segir Einar.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast eintak af blaðinu á pdf-formi með því að smella á hlekkinn Tölublöð.