Staða markaðsskuldabréfa í lok nóvember 2009 nam 1.444 milljörðum króna og hækkaði um 0,67 milljarða í mánuðinum, samanborið við lækkun upp 82,6 milljarða í mánuðinum á undan.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en staða markaðsskuldabréfa nam á sama tíma í fyrra rúmum  1.419 milljörðum króna á sama tíma í fyrra, og hafði þá lækkað um tæpa 450 milljarða frá því í október sama ár vegna vegna bankahrunsins. Þá nam staða markaðsskuldabréfa í upphafi þessa árs tæpum 1.513 milljörðum króna.

Ríkisbréf hækkuðu um tæpa 13,5 milljarða í nóvember og nam staða þeirra í lok mánaðarins tæpum 318 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra nam staða ríkisbréfa um 167,5 milljörðum króna en í upphafi árs 2009 nam staða þeirra um 235 milljörðum króna.

Hins vegar lækkuðu skráð bréf atvinnufyrirtækja um 25,2 milljarða og var staða þeirra í lok nóvember um 190,9 milljarðar. Þá hefur staða skráðra bréfa atvinnufyrirtækja lækkað um 52,7 milljarða króna á tveimur mánuðum en í upphafi síðasta árs (2009) nam staða þeirra um 335,6 milljörðum króna.

Íbúðabréf hækkuðu um 8,9 milljarða í nóvember og var staða þeirra 704 milljarða króna, samanborið við tæpa 633 milljarða á sama tíma í fyrra og rúman 651 milljarð í upphafi þessa árs.

Markaðsvíxlar lækkuðu umtalsvert í nóvember, eða um 19,7 milljarða króna eftir að hafa lækkað um 48,5 milljarða á milli mánaða í október. Þannig nam staða markaðsvíxla um 69,9 milljörðum króna í lok nóvember, samanborið við 44,5 milljarða á sama tíma í fyrra. Þess má þó geta að í nóvember í fyrra hafði staða markaðsvíxla lækkað um rúma 330 milljarða á tveimur mánuðum. Í upphafi þessa árs nam staða markaðsvíxla rétt rúmum 100 milljörðum.

Þá hækkuðu hlutabréf sem skráð eru í Kauphöllinni um rúma 6,7 milljarða og er nú á svipuðu róli og í vor. Staða skráðra hlutabréfa nam þannig 187,9 milljörðum króna í lok nóvember samanborið við tæpa 238 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Í upphafi árs 2009 nam staða hlutabréfa 217,3 milljörðum króna.