Stjórnir BYRS sparisjóðs og Sparisjóðs Kópavogs hafa skrifað undir áætlun um samruna sjóðanna og miðast samruninn við 1. janúar 2007. Gert er ráð fyrir að hlutur stofnfjáreigenda í BYR verði 87% í sameinuðum sjóði og hlutur stofnfjáreigenda í Sparisjóði Kópavogs verður 13%. Til að framangreint hlutfall náist verður stofnfé í BYR aukið um kr. 2.758.264 þús. áður en til samrunans kemur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sparisjóðunum tveimur.

Með samrunanum verður til stærri og öflugri eining sem er vel í stakk búin til að takast á við ný og krefjandi framtíðarverkefni í síharðnandi samkeppnisumhverfi. Með sameiningunni aukast möguleikar til framþróunar og vaxtar og hefur sameinaður sparisjóður mun sterkari stöðu til sóknar en hvor sjóður fyrir sig hafði áður. Heildareignir sameinaðs sjóðs verða um 130 milljarðar króna.

BYR rekur í dag sex útibú í Reykjavík, Garðabæ og Hafnarfirði og Sparisjóður Kópavogs rekur þrjú útibúi í Kópavogi.