Stjórnir Byrs sparisjóðs og Sparisjóðs Norðlendinga hafa skrifað undir áætlun um samruna sparisjóðanna og miðast hann við 1. júlí 2007. Gert er ráð fyrir að hlutur stofnfjáreigenda í Byr sparisjóði verði 90,5% í sameinuðum sjóði og hlutur stofnfjáreigenda í Sparisjóði Norðlendinga verður 9,5%. Til að framangreint hlutfall náist verður stofnfé í Sparisjóði Norðlendinga aukið um krónur 234.860.000 áður en til samrunans kemur. Markmiðið með samrunanum er að styrkja stöðu sparisjóðanna í harðnandi samkeppni á fjármálamarkaði til hagsbóta fyrir viðskiptavini, starfsfólk og stofnfjáreigendur.

Íslenskur fjármálamarkaður hefur undanfarin ár einkennst af mikilli grósku og vexti. Fjármálafyrirtæki hafa vaxið og dafnað og samkeppni hefur aukist mikið. Sameining sparisjóðanna eru viðbrögð við þessari þróun. Með samrunanum verður til stærri og öflugri eining sem er vel í stakk búin til að takast á við ný og krefjandi verkefni. Með sameiningunni aukast möguleikar til framþróunar og vaxtar og hefur sameinaður sparisjóður sterkari stöðu til sóknar.