Á fimmtudag verður opnað í Reykjavík, Reykjavik Business Centre - nýtt skrifstofuhótel í miðborg Reykjavíkur. Fyrsti áfangi starfseminnar fer fram að Ingólfsstræti 5 í um 200 fermetra húsnæði. Þaðan er stutt í alla stjórnsýslu og mörg af helstu fyrirtækjum landsins. RBC stefnir að því að opna til viðbótar um 1000 fermetra skrifstofuhótel fyrir árslok 2006.

Reykjavik Business Centre (RBC) er ný starfsemi á sviði fasteignarekstrar fyrir skrif-stofuhúsnæði í miðbæ Reykjavíkur. Hlutverk RBC er að reka skrifstofuhótel fyrir erlend og innlend fyrirtæki, sem þurfa á fullbúinni vinnuaðstöðu að halda til skemmri eða lengri tíma með skömmum fyrirvara segir í tilkynningunni.

Skrifstofuhótel veita fyrirtækjum aðgang að fullbúnum skrifstofum með margvíslegri þjónustu, sem einvörðungu er greitt fyrir eftir notkun og byggir á einföldum samningum til afarmarkaðs tíma. Þau auðvelda fyrirtækjum að losna við þá töluverðu fjárfestingu, takmarkandi leigusamninga og erfiðu vinnu fyrir stjórnendur sem venjulega fer í að útbúa skrifstofuaðstöðu. Þau henta því mjög vel til dæmis erlendum fyrirtækjum sem eru að leita að aðstöðu tímabundið á Íslandi, fyrirtækjum af landsbyggðinni sem eiga viðskipti í Reykjavík og nýjum fyrirtækjum sem eru að hefja starfsemi og vilja ekki skuldbinda sig húsnæðislega og fjárhagslega til langs tíma.

Reykjavik Business Centre er í samstarfi við Instant-offices Ltd um markaðssetningu á þjónustunni til erlenda viðskiptavina, en það fyrirtækið er með skrifstofur í London, Paris, New York, Munich og Sidney. Fyrirtækið er samstarfsaðili um 5000 Business Centre um allan heim.

RBC býður viðskiptavinum sínum skrifstofuaðstöðu með húsgögnum fyrir allt að 15 starfsmenn í opnu rými og einstaklings skrifstofum. Aðgangur er að interneti, prentum, ljósritun, bréfsíma, fundarherbergi, snyrtingu og kaffistofu. Einnig er hægt að leigja fundaraðstöðuna eina sér, en hún er búin fullkomnum fjarfundarbúnaði og tilheyrandi.

RBC tekur að sér í samvinnu við Instant-offices Ltd að að veita íslenskum fyrirtækjum þjónustu við að finna heppilega skrifstofuaðstöðu erlendis í samræmi við þarfir þeirra.