Helga Björk Laxdal lögfræðingur hefur verið ráðin skrifstofustjóri borgarstjórnar. Hún útskrifaðist með embættispróf í lögum frá Háskóla Íslands árið 1996 og hefur m.a. sótt sér framhaldsmenntun hjá lagadeild Harvard-háskóla og hjá H.Í. í opinberri stjórnsýslu, stjórnsýslu sveitarfélaga og rafrænni stjórnsýslu. Hún hefur starfað sem fulltrúi sýslumanns og sem héraðsdómslögmaður, en hóf störf hjá Reykjavíkurborg á árinu 2003. Síðustu sex ár hefur hún starfað sem yfirlögfræðingur Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar.