Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur dregið til baka breytingartillögu sína um að afnema 59% toll á innflutt kartöflusnakk. Félag atvinnurekenda hefur undanfarið barist fyrir því að tollurinn yrðu felldur niður, en félagið hefur meðal annars kallað hann „ofurtoll“ . Félag atvinnurekenda segir að meirihluti nefndarinnar hafi hætt við tillöguna vegna þrýstings frá innlendum snakkframleiðendum, en samtök iðnaðarins hafa m.a. mótmælt afnámi tollsins.

„Verndartollar fyrir iðnað áttu að heyra sögunni til fyrir löngu,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. „Ofurtollur á kartöflusnakk hefur verið réttlættur með því að hann sé hluti af tollvernd fyrir landbúnaðinn. Staðreyndin er hins vegar sú að engar íslenskar kartöflur eru notaðar í framleiðslu tveggja iðnfyrirtækja, sem framleiða snakk. Þau framleiða úr innfluttu hráefni, sem ber litla sem enga tolla. Snakktollurinn er þannig verndartollur fyrir iðnað, dulbúinn sem tollvernd fyrir landbúnað.“

Félag atvinnurekenda harmar að stjórnarmeirihlutinn í nefndinni skuli guggna á því að afnema verndartoll fyrir innlenda iðnaðarframleiðslu. Ólafur segir að neytendur hafi greitt yfir 160 milljónir króna á siðasta ári í toll af kartöflusnakki.

Snakkframleiðendur hafa bent á að ekki ætti að afnema tolla á innflutning til Íslands nema ef um leið væri samið um afnám innflutningstolla í útlöndum, en þeir segja mjög kostnaðarsamt að flytja snakk út við núverandi tollastefnu.

Tillagan flutt í eigin nafni

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd, hefur hins vegar lagt tillöguna fram í eigin nafni, þó með þeirri breytingu að snakktollurinn verði ekki afnuminn um áramót, heldur á miðju ári 2016. Félag atvinnurekenda hvetur þingmenn til að styðja við og samþykkja tillögu Sigríðar Andersen.