Skuldabréf útgefin af Farice ehf. (EFAR 09 1) hafa verið færð af Athugunarlista í kjölfar endurmats á fjárhagslegri stöðu útgefanda með hliðsjón af áhrifum þjónustusamnings við ríkið. Skuldabréf Eignarhaldsfélagsins voru færð á Athugunarlista Kauphallarinnar vegna óvissu um fjárhagslega stöðu útgefanda í apríl árið 2010.

Í tilkynningu á vefsíðu Kauphallarinnar þá var vísað til þess að stjórn félagsins hafi í nóvember árið 2009 hafið vinnu við endurskipulagningu fjármögnunar félagsins til lengri tíma, með samningum við helstu lánardrottna félagsins.