Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,27% í 20,6 milljarða viðskiptum í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,20% og sá óverðtryggði um 0,42%.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,50% í dag. Bréf Haga hækkuðu um 0,88% og Marels um 0,38%. Gengi bréfa Nýherja lækkaði hins vegar um 4,35% ogb Icelandair um 0,59%. Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam 61,2 milljónum króna.