Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,18% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,33%, en sá óverðtryggði hækkaði hins vegar um 0,19%. Velta á skuldabréfamarkaði í dag nam 11,2 milljörðum króna og námu viðskipti með óverðtryggð bréf þar af 6,6 milljörðum.

Frá áramótum hefur GAMMA vísitalan hækkað um ein 6,8%. Verðtryggði hluti vísitölunnar hefur hækkað um 7,6% og sá óverðtryggði hefur hækkað um 4,78%.