Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,69% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti hennar lækkaði um 0,82% og sá óverðtrygggði um 0,36%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 15,54 milljörðum króna og skiptist nokkuð jafnt milli verðtryggðra og óverðtryggðra bréfa.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,72% í dag og endaði í 994 stigum. Gengi bréfa BankNordik hækkaði um 4,69% og Eimskipafélagsins um 1,81%. Gengi bréfa Össurar lækkaði um 2,15%, Icelandair um 1,03% og Marels um 0,75%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 127,2 milljónum króna í dag.