Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,05% í 3,9 milljarða króna viðskiptum í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,08% en sá óverðtryggði lækkaði um 0,04%. Nær öll veltan, eða um 3,3 milljarðar, var með óverðtryggð skuldabréf.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,32% í tæplega 70,2 milljóna króna viðskiptum. Bréf Nýherja hækkuðu um 2,54%, Össurar um 1,0% og Regins um 0,24%. Ekkert félag á Aðallista lækkaði í verði, en á First North markaðnum lækkaði gengi bréfa Hampiðjunnar um 15% í 2,5 milljóna króna viðskiptum.