Kauphöllin hefur fært skuldabréf Sparisjóðs Mýrasýslu (SPM 03 1, SPM 04 1, SPM 05 1, SPM 06 1 og SPM 06 2) Athugunarlista vegna óvissu um framtíð útgefanda með vísan til tilkynningar frá félaginu í dag vegna greiðsluerfiðleika félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá kauphöllinni en fyrir stundu sendi sparisjóðurinn frá sér tilkynningu þar sem fram kom að tekist hefði náð samkomulag um kyrrstöðu við helstu lánadrottna félagsins og unnið væri að endurskipulagningu þess.