Skuldabréf útgefin af Atorku Group hf. (ATOR 04 1, ATOR 05 1, ATOR 06 1, ATOR 07 3, ATOR 07 4, ATOR 07 6, ATOR 07 8, JRDB 04 1 og JRDB 05 1) hafa verið færð á Athugunarlista vegna óvissu um fjárhagslega stöðu útgefanda með vísan til tilkynningar frá félaginu í gær um greiðsluerfiðleika félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en í gær sendi Atorka frá sér tilkynningu þar sem fram kom að félagið hefði samið við alla eigendur skuldabréfa í eftirtöldum flokkum um kyrrstöðu til 20. mars 2009 (sjá tengda frétt að neðan).