Skuldabréf útgefin af Exista hf. (EXISTA 04 1, EXISTA 05 1, EXISTA 05 2, EXISTA 06 1A, EXISTA 06 3, EXISTA 07 1 og EXISTA 07 2) hafa verið færð á Athugunarlista vegna óvissu um fjárhagslega stöðu útgefanda með vísan til tilkynningar frá félaginu í gær um greiðsluerfiðleika félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.