Stýrivaxtalækkun, gjaldskrárhækkanir og gengisdómar hafa valdið miklum hækkunum á skuldabréfamarkaði. Vísitala verðtryggðra bréfa hefur hækkað um 7,5% frá því í byrjun ágúst. Búist er við að markaður verði sterkur áfram.
„Olíu var hellt á eldinn þegar Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í ágúst. Það voru nokkuð skýr fyrirheit um að áfram yrði haldið með frekari lækkunum. Það sést einnig á verðtryggðum skuldabréfum að gjaldskrárhækkun Orkuveitunnar vekur upp væntingar um verðbólgu, einnig hjá þeim sem bjuggust ekki við frekari verðbólgu hér á skerinu,“ segir Styrmir Guðmundsson, sjóðsstjóri MP sjóða, um miklar hækkanir á skuldabréfamörkuðum.
Frá því að Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 1% þann 18. ágúst síðastliðinn hefur velta á skuldabréfamarkaði stóraukist. Að meðaltali hefur dagleg velta verið rúmir 15 milljarðar frá stýrivaxtalækkun samanborið við tæpa 10 milljarða á dag það sem af er ári. Í september hefur velta numið frá 18 til 25 milljörðum króna á dag. „Gjaldskrárhækkun hefur kveikt væntingar um að enn sé verðbólga eftir í pípunum og hugsanlega af þeim toga sem Seðlabankinn lítur framhjá. Því er jafnvel búist við áframhaldandi stýrivaxtalækkun og að verðhækkanir, líkt og þær hjá Orkuveitunni, muni ekki breyta takti Seðlabankans,“ segir Styrmir.
Búast við frekari stýrivaxtalækkunum
Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAMMA, segir stefnubreytingu Seðlabankans í raun 180 gráðu beygju. „Hingað til hefur allt snúist um afnám gjaldeyrishafta og mikilvægi þess að halda stýrivöxtum háum vegna þess. En verðbólguþróun á þessu ári hefur verið með þeim hætti að jafnvel svartsýnustu aðilar á verðbólguhjöðnun hafa þurft að láta í minni pokann,“ segir Gísli.
Styrmir tekur í sama streng og segir að margt bendi til að Seðlabankinn hugsi nú minna um afnám hafta en áður. „Ég held að gengisdómar og sú fjármálaóvissa sem ríkir vegna þeirra hafi óumflýjanlega seinkað afnámi hafta. Spurningin er í raun sú hvort Seðlabankinn hafi nú breytt áformum sínum. Hvort hann ætli nú að halda höftum í lengri tíma en áður var stefnt að og vinna að efnahagsaðstæðum. Tölur sýna að þær eru mjög erfiðar.“
-Nánar í Viðskiptablaðinu.