Reykjavíkurborg mun á morgun halda útboð á skuldabréfum í flokknum RVK 09 1og er stefnt að því að taka tilboðum fyrir 1 milljarð króna og hærra. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallar.

Þar kemur fram að stærð flokksins sé 10,7 milljarðar króna og að hingað til í ár hafi hann verið stækkaður um 1.390 milljónir. Heimild sé til 6,3 milljarða stækkunar á árinu.