Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa markaða, segir að aukin áhersla bankanna á einstaklingslán og minnkandi áhersla á fyrirtækjalán búi til hvata fyrir fyrirtæki til þess að leita nýrra fjármögnunarleiða. Þar sé fyrirtækjaskuldabréfamarkaður spennandi valkostur. „Það sem er áhugavert fyrir útgefendur og fjárfesta er að nú eru allar forsendur til staðar fyrir því að fyrirtækjaskuldabréfamarkaðurinn geti blómstrað. Fjármögnun fyrirtækja getur þ.a.l. að auknu leyti verið markaðsfjármögnun sem sérhæfðir aðilar, eins og Fossar markaðir, hafa milligöngu um. Þetta er jákvæð þróun því fyrirtækjaskuldabréfamarkaðurinn hefur hálfpartinn legið í dvala frá árinu 2008, en fyrir það var hann mjög virkur," segir hann og bætir við að frá hruni hafi hvatinn ekki verið nægur til þess að fyrirtæki leiti inn á fyrirtækjaskuldabréfamarkaðinn fyrr en nýverið.

„Ég tel að allir fjárfestar taki því fagnandi að fá inn aukna flóru fjárfestingamöguleika," segir Haraldur og bendir á að fyrirtækjaskuldabréfamarkaðurinn sé fýsilegur kostur fyrir lífeyrissjóði og aðra stofnanafjárfesta. „Lægri vextir og aukinn áhersla bankanna á einstaklingslán hefur gert það að verkum að lífeyrissjóðirnir hafa staðið frammi fyrir uppgreiðslum á íbúðarlánum hjá sér til viðbótar við hefðbundið innflæði á formi iðgjalda. Lífeyrissjóðirnir eru þegar umsvifamiklir á hlutabréfamarkaði og tæki þeirra til þess að létta á fjárfestingaþörfinni, sem voru m.a. íbúðalánin, er ekki jafn sterkt og áður. Þar sem bankarnir hafa minnkandi áhuga á fyrirtækjalánum væri það mjög eðlileg þróun að lífeyrissjóðir myndu nýta tækifærið og beina fjármagni sínu í auknu mæli til innlendra fyrirtækja í gegnum fyrirtækjaskuldabréfamarkaðinn."

Haraldur segir aukið líf hafi færst í fyrirtækjaskuldabréfamarkaðurinn undanfarin misseri og Fossar séu leiðandi í frumútgáfu skuldabréfa hér á landi. „Í fyrra sóttum við um 60 milljarða króna fyrir okkar viðskiptavini á fyrirtækjaskuldabréfamarkað og það sem af er þessu ári höfum við sótt yfir 50 milljarða. Það er því sannarlega líf á þessum markaði, eftirspurnin er til staðar og ég tel að fyrirtækjaskuldabréfamarkaðurinn muni færast enn í aukanna."

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri

Fossar markaðir hf. uppfylltu skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar til þess að flokkast sem „Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri". Hafa Fossar uppfyllt skilyrðin árlega frá því listinn var fyrst birtur. Félagsins var hins vegar ekki getið í sérblaði, þar sem fjallað var um þessi mál og gefið var út 15. október. Ástæðan er sú að Skatturinn afgreiddi ársreikning félagsins eftir að vinnslu blaðsins lauk en venjulega á Skatturinn að afgreiða ársreikninga 10. september. Önnur félög sem uppfylltu skilyrðin en voru ekki á lista sérblaðsins af sömu ástæðum er þjónustufyrirtækið Fastus og hugbúnaðarfyrirtækið Fuglar.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .