Rúmlega sjö milljarða króna velta var með ríkisskuldabréf í Kauphöll Íslands í dag. Óverðtryggð skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,08% og hefur hækkað um 0,29% á einum mánuði. Viðskipti með íbúðabréf námu 1,3 milljörðum króna og hækkaði verðtryggða skuldabréfavísitala Gamma um 0,04% í dag. Verðtryggða vísitalan hefur hins vegar hækkað um tæp 3% á einum mánuði. Samtals nam því velta á skuldabréfamarkaðnum 8,4 milljörðum króna í lok dags.