Skuldabréfaverð í Icebank stendur nú í 28 samkvæmt upplýsingum um skuldabréfaverð gömlu bankanna á Keldunni, keldan.is . Verð bréfanna stóð í 19 í lok ágúst og bendir hækkunin til að fjárfestar búist við betri endurheimtum en áður.

Skuldabréf hinna gömlu bankanna hefur breyst minna á síðustu vikum. Þannig standa bréf Glitnis í 30 en voru um miðjan júlí 27, bréf í Kaupþingi standa í 26 og bréf í Landsbankanum eru í 11 en stóðu í 9 um miðjan september.

Bréf í Straumi eru í 41 og hafa hækkað úr 38 á síðustu vikum.