Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,28% í 6,3 milljarða króna viðskiptum í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,38% en sá óverðtryggði um 0,01%. Frá áramótum hefur GAMMA vísitalan hækkað um 4,54%, verðtryggði hluti hennar um 5,42% og sá óverðtryggði um 2,68%.

Af einstökum skuldabréfaflokkum var breytingin mest á HFF 24 íbúðabréfaflokknum, sem hækkaði um 0,52% í verði í dag, en velta viðskipta með þennan flokk nam 1,5 milljörðum króna.