Gamma
Gamma
© BIG (VB MYND/BIG)
Verðtryggð og óverðtryggð skuldabréf hækkuðu í verði í júnímánuði. Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 1,4% og hefur hækkað alls um 3,3% á árinu. Hlutfall óverðtryggðra bréfa lækkaði lítillega og er nú 27,9%. Líftími vísitölunnar er um 9 ár, samkvæmt mánaðar yfirliti GAMMA.

Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 1,4% og hefur hækkað um 6,4% á árinu. Óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 1,1% og hefur lækkað á árinu um 4,1%.

Meðaldagsvelta var um 12,2 milljarðar en það sem af er ári er hefur veltan verið að jafnaði um 10 milljarðar króna.