Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 4,7 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,4 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,3% í 3,3 milljarða viðskiptum.

Það sem af er ári hefur skuldabréfavísitalan hækkð um 3,12%. Þar af hefurverðtryggði hlutinn hækkað um 6,13%, en sá óverðtryggði lækkað um 2,93%.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði lítillega í dag í 43 milljóna króna viðskiptum. Markaðsvísitala GAMMA stóð í stað í dag í 6,1 milljarða króna viðskiptum og hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,6% í dag í 1,3 milljarða króna viðskiptum.