Heildarvelta í skuldabréfaviðskiptum á þessum síðasta viðskiptadegi þessarar óvenjustuttu vinnuviku nam 14,2 milljörðum króna. Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,4% í dag.

Vísitala verðtryggðra skuldabréfa hækkaði um 0,4% í 3,2 milljarða viðskiptum og vísitala óverðtryggðra skuldabréfa hækkaði sömuleiðis um 0,4% en í 11 milljarða króna viðskiptum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá GAMMA.