Fjármálaráðuneytið segir í tilkynningu umsamið skuldabréf vegna Landsbankans sé afborgunarlaust fyrstu fimm árin, en síðan sé gert ráð fyrir að það sé greitt niður á árunum 2014–2018, þegar gjaldeyrismarkaður verður kominn í eðlilegt horf. Vegna stærðar skuldabréfsins er samið um afborgunarferil þess með tilliti til áætlana um greiðslujöfnuð landsins gagnvart útlöndum á næstu árum.

Því telur ráðuneytið að ekki er því ástæða til að ætla að samningur um uppgjör milli bankanna muni hafa nein óeðlileg áhrif á gengi krónunnar á næstu árum.

Tilkynning ráðuneytisins er tilkomin vegna fréttar á forsíðu Morgunblaðsins þann 21. nóvember sl. Í fréttinni er fjallað um samninga milli Landsbankans og Landsbanka Íslands hf. um útgáfu nýja bankans á 10 ára gengistryggðu skuldabréfi að fjárhæð 260 milljarðar króna  til gamla bankans vegna þeirra útlána sem tekin voru yfir.

Í fréttinni er gert ráð fyrir að skuldabréfið verði greitt niður með jöfnum árlegum afborgunum og að afborganirnar muni því strax fela í sér útstreymi gjaldeyris sem gæti sett óþægilegan þrýsting á krónuna. Þetta er rangt segir fjármálaráðuneytið.

,,Með samningunum má segja að Landsbankinn hafi tryggt sér aðgang að erlendu lánsfé til langs tíma og getur hann því fjármagnað öll útlán til þeirra viðskiptavina sinna sem þurfa á slíku fé að halda í starfsemi sinni. Hér er helst um að ræða útflutningsfyrirtæki og aðra aðila sem hafa tekjur í erlendum myntum," segir í tilkynningunni.