Skuldabréfavísitalan GAMMA:GBI hækkaði um 2,1% í mars. Á árinu hefur vísitalan hækkað um 2,6%. Veðrtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 2,5% og hefur hækkað um 4,4% á árinu. Óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 1,1% og nemur lækkunin 1,5% á árinu.

Þetta kemur fram í mánaðaryfirliti GAMMA. Hlutafall óverðtryggðra bréfa lækkaði lítillega úr 28,6% í 28,4% og líftími vísitölunnar GAMMA:GBI lækkaði úr 9,19 árum í 9,16 ár.

Meðaldagsvelta í mars var um 8,5 milljarðar og er um 9,3 milljarðar það sem af er ári.