Samkvæmt upplýsingum frá greiningardeildum nú seinni part dags hefur skuldatryggingaálag bankanna hækkað í dag.

Þannig hefur álagið á Glitni hækkað um 43,5 punkta og er nú 1331 punktar, álagið á Kaupþing hefur hækkað um 114,2 punkta og er nú 1231,7 punktar en álagið á Landsbankann hefur hækkað um 21,7 punkta og er nú 909,2 punktar.