Skuldatryggingaálag á íslensku bankana og ríkissjóð hefur lækkað talsvert í kjölfar þeirra fregna að Seðlabankinn hefur með gjaldeyrisskiptasamningum við seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur tryggt sér aðgengi að 1,5 milljörðum evra.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Skuldatryggingaálag Kaupþings stendur nú í 430 punktum og hefur lækkað um 30 punkta síðan tíðindin bárust.

Álag á skuldatryggingar Glitnis hefur lækkað úr 410 punktum í 365 punkta og álag Landsbankans hefur farið niður um 75 punkta og stendur nú í 185 punktum.

Þá hefur skuldatryggingaálag ríkissjóðs lækkað um 30 punkta en Greining Glitnis segir að lækkandi skuldatryggingaálag ætti að auðvelda ríkissjóði beina erlenda lántöku til að styrkja gjaldeyrisforðann á viðunandi kjörum.

Eins og kunnugt er tilkynnti forsætisráðherra að fleiri aðgerða að hálfu stjórnvalda og Seðlabankans sé að vænta og segir Greining Glitnis í Morgunkorni sínu að bein erlend lántaka þyki líklegust í því sambandi, auk þess sem verulegar líkur eru á frekari gjaldmiðlaskiptasamningum, t.d. við Evrópska seðlabankann og Englandsbanka.