Skuldatryggingaálag Glitnis [ GLB ] og Kaupþings [ KAUP ] hækkaði álagið um 25 punkta innan dagsins, að því er fram kemur í Hálffimm fréttum Kaupþings. Ekki er getið um hreyfingar á skuldatryggingaálagi Landsbankans.

"Seinni partinn í dag var skuldatryggingarálag á fimm ára bréf hjá Glitni og Kaupþingi 625 punktar. Hæst fór skuldatryggingarálagið hjá Kaupþingi í 1.050 punkta í lok mars og hefur það því lækkað um 425 punkta en álagið hjá Glitni hefur lækkað um 375 punkta á sama tíma. Álagið á sambærileg bréf hjá Landsbankanum var 375 punktar í dag og hefur lækkað um tæpa 400 punkta," segir greiningardeildin.

Skuldatryggingarálag íslensku bankanna hefur hinsvegar lækkað um 40% frá því sem hæst var í lok mars, að hennar sögn. "Svipaða sögu má segja um Itraxx-fjármálavísitöluna, sem mælir álag á skuldatryggingar evópskra fjármálafyrirtækja, og virðast íslensku bankarnir fylgja þeirri þróun. Sjálfstraust fjárfesta virðast því vera að aukast," segir greiningardeildin.

Upp hafa sprottið umræður um hvort koma eigi á fót regluverki í kringum skuldatryggingarmarkaðinn og að uppgjörsmiðstöð (e. clearing house) sjái um frágang allra viðskiptanna. Þessar breytingar myndu tvímælalaust efla markaðinn, að mati greiningardeildarinnar, og gera hann gegnsærri, því í dag er markaðurinn mjög grunnur og sveiflukenndur. Greiningardeildin gerir ráð fyrir að álagið muni lækka enn fremur á komandi vikum og að það endurspegli þá betur raunverulega áhættu sem liggur hjá bönkunum.