Skuldatryggingaálag íslensku viðskiptabankanna auk íslenska ríkisins rauk upp við opnun markaða í morgun.

Hæst er álag Glitnis, 1125 punktar, og nemur hækkun álagsins 270 punktum frá því á föstudaginn.

Álag Landsbankans er 750 punktar og hækkar um 250 punkta. Hækkun Landsbankans er hlutfallslega mest af bönkunum og nemur 50%.

Skuldatryggingaálag Kaupþings var 925 punktar og hækkar um 190.

Álag íslenska ríkisins er jafnframt hátt – 325 punktar og hækkar um 45 punkta frá því fyrir helgi.

iTRAXX-skuldatryggingavísitalan hækkar hressilega, og stendur nú í 122, og hækkar um 32.