Skuldatryggingaálag Kaupþings er "í sögulegu hámarki" en það var 207,5 punktar í lok dags fyrir tveimur dögum, að því er fram kemur hjá greiningardeild Landsbankans. Til samanburðar var skuldatryggingaálag Glitnis 115 punktar og Landsbankans 92 punktar.

"Ég er nokkuð undrandi á að það hafi hækkað jafnmikið og raun og ber vitni," segir Kim Bergoe, sérfræðingur hjá Fox-Pitt, í samtali við Viðskiptablaðið.

Lesið meira í Viðskiptablaðinu.