Skuldatryggingaálag viðskiptabankanna hélt áfram að hækka frá síðasta föstudegi til mánudags.

Skuldatryggingaálag Kaupþings hækkaði um 95 punkta í 1.185 og skuldatryggingaálag bæði Glitnis og Landsbankans hækkaði um 50 punkta; Glitnis í 1.300 og Landsbankans í 800, samkvæmt upplýsingum frá greiningardeildunum.