Skuldatryggingarálag Írska ríkisins til fimm ára er nú um 590 punktar og hefur hækkað um 41 punkt í dag. Wall Street Journal fjallar um málið og segir að hækkunina megi rekja til aukinna áhyggna af fjárhagsstöðu írska ríkissjóðsins og getu hans til að sækja sér lánsfé á mörkuðum.

Skuldatryggingarálag Írlands fór í fyrsta sinn yfir 500 punkta síðasta mánudag.