Skuldatryggingarálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur hækkað nokkuð á undanförnum dögum. Í lok dags í gær stóð álagið til fimm ára í 308 punktum (3,08%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni en viku áður var álagið komið niður í 257 punkta sem er með því lægsta sem það hefur farið niður í frá bankahruninu um haustið 2008.

Greining Íslandsbanka fjallar um skuldatryggingarálagið í dag. Segir að sömu sögu sé að segja um álag ríkissjóðs til eins árs, sem stóð í gær í 366 punktum en var viku áður 307 punktar.

Almenn  hækkun á meðal ríkja V-Evrópu

„Þessi hækkun á skuldatryggingarálagi Íslands er ekkert einsdæmi á meðal ríkja í Vestur Evrópu. Þannig hefur álagið hækkað á öll ríki þessa heimshluta á tímabilinu að Hollandi undanskildu. Í gær stóð meðaláhættuálagið til fimm ára á ríki Vestur-Evrópu í 234 punktum sem er tæpum 13 punktum hærra en það stóð í fyrir viku síðan. Þó lækkaði það nokkuð frá deginum áður en þá stóð meðalálagið í 240 punktum sem er það hæsta sem það hefur farið upp í,“ segir í Morgunkorni.

Hækkar mest hjá Íslandi

Hvort sem miðað er við punkta eða hlutfall þá hækkar álagið mest hjá Íslandi. „Við teljum þó líklegt að þessi hækkun tengist ekki sérstökum innlendum þáttum, þar sem benda má á fleiri þætti sem þarna geta haft áhrif sem teljast til jákvæðra tíðinda fremur en neikvæðra. Nærtækast er að nefna að fjórða endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er í höfn, auk þess sem ekki er ólíklegt að samkomulag náist loksins um Icesave nú í mánuðinum. Teljum við því litla undirstöðu fyrir þessari hækkun álagsins að þessu sinni og að hún sé því aðeins tilfallandi og komi til með tíð og tíma að ganga til baka.“