Skuldir heimilanna hafa hækkað hratt undanfarin ár og mun hraðar en ráðstöfunartekjur. Skuldir heimilanna voru þannig um 2.017 milljarðar króna samkvæmt áætlun Greiningar Íslandsbanka í lok síðastliðins árs en ráðstöfunartekjur heimilanna á síðasta ári námu um 741 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka.

Þar kemur fram að skuldir sem hlutfall af ráðstöfunartekjum stóðu þá í 272% en til samanburðar var þetta hlutfall 178% árið 2000 og hefur því hækkað um 94 prósentustig síðan.

Skuldaaukning heimila undanfarin ár hefur átt sér stað í flestum hagkerfum og afar mismunandi er hversu skuldsett heimili í einstökum löndum eru.

Greining Íslandsbanka segir skuldir íslenskra heimila vara hins vegar miklar og hlutfall skulda á móti ráðstöfunartekjum hátt í samanburði við önnur þróuð hagkerfi. Þannig er þetta hlutfall að meðaltali 134% í Bandaríkjunum, 180% á Írlandi, 140% á Spáni svo einhver lönd séu nefnd.

Sjá nánar Morgunkorn Íslandsbanka.