Heildarskuldir ríkisstofnana námu rúmum 20 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þá vaxið um 45% á fjórum árum. Eftirliti ráðuneyta með skuldamálum stofnana er mjög ábótavant að mati Ríkisendurskoðunar, en fjallað er um málið á vefsíðu stofnunarinnar. Ríkisendurkoðun hvetur fjármála- og efnahagsráðuneytið til að stuðla að því að úr þessu verði bætt.

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um eftirlit ráðuneyta með skuldum og fjármagnskostnaði ríkisstofnana. Fram kemur að heildarskuldir stofnana námu rúmum 20 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þá vaxið um 45% á fjórum árum. Þar af var meira en þriðjungur skuldir á viðskiptareikningum við ríkissjóð, tæp 40% voru skuldir við birgja og vegna ógreiddra rekstrargjalda og um fjórðungur var vegna lántöku og skulda við aðra ríkisaðila.

Skuldir stofnana við ríkissjóð jukust um 85% á fjórum árum en aðrar skuldir um 30%. Þá nam fjármagnskostnaður stofnana 57 milljónum króna á síðasta ári. Hann hefur farið ört minnkandi á undanförnum árum en fór hæst í 600 milljónir króna árið 2009. Algengasta ástæðan fyrir skuldasöfnun ríkisstofnana er langvarandi hallarekstur en þriðjungur þeirra var með uppsafnaðan halla í árslok 2011.