Vaxtaberandi skuldir Vodafone lækkuðu úr um 9 milljörðum króna í um 7 milljarða við tveggja milljarða króna hlutafjáraukningu sem lauk í síðasta mánuði.

Viðskiptablaðið greindi frá aukningunni í síðasta tölublaði en ráðist var í hana til þess að greiða niður vaxtaberandi skuldir. Hlutafjáraukningin var lokahnykkur í endurskipulagningu félagsins sem stefnir á markað fyrir áramót.