Skuldir þjóðarbúsins umfram eignir voru um 7.885 milljarðar króna  eða 458% af vergri landsframleiðslu við lok annars ársfjórðungs. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð var staðan neikvæð um 464 milljarða króna eða 27% af vergri landsframleiðslu.  Þetta sýna tölur Seðlabankans sem birtar voru í dag.

Talið er að slit innlánsstofnana í slitameðferð hafi neikvæð áhrif á hreinu stöðuna sem nemur 43% af vergri landsframleiðslu en önnur fyrirtæki sem unnið er að slitum á hafi jákvæð áhrif sem nemi 5% af vergri landsframleiðslu. Undirliggjandi erlend staða miðað við reiknað uppgjör innlánsstofanna í slitameðferð og án fyrirtækja sem unnið er að slitum á er því metin neikvæð um 65% af vergri landsframleiðslu.

Ekki er lengur horft framhjá áhrifum Actavis og er þessi tala því aðeins samanburðarhæf við birtingu Seðlabankans á undirliggjandi erlendri stöðu í lok fyrsta ársfjórðungs þessa árs. Þá var staðan einnig metin neikvæð um 65% af vergri landsframleiðslu.