„Okkur vantar kraftmikla, óþreytandi og áberandi duglega manneskju sem kann allt; meðal annars að stýra verkefnum, halda utan um ferðabókanir, fundargerðir og allt mögulegt annað. Þarf að vera jákvæð, gædd ríkri skipulagshæfni, með blússandi WOW faktor og bros á vör.“

Þannig hljómar starfslýsing aðstoðarmanns forstjóra WOW air. Starfið er auglýst laust til umsóknar í Fréttablaðinu í dag. Flugfélagið unga auglýsir að auki eftir framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs, starfsmannastjóra og matreiðslumeistara. Þá leitar flugfélagið eftir svæðisstjóra í Skandinavíu sem kemur til með að vera staðsettur í Kaupmannahöfn.