Títan B, fjárfestingarfélag Skúla Mogensen, hefur bætt við sig hlutafé í MP banka að andvirði 100 milljónir króna. Hlutafé í bankanum var hækkað um 300 milljónir í byrjun júní og á Skúli nú hlutafé í bankanum að nafnvirði rúmlega 580 milljónir króna sem samsvarar um 9,91% hlut.

Helmingur af hlut Títans B var settur inn í félag fyrrverandi eiginkonu Skúla, Margrétar Ásgeirsdóttur, en saman áttu þau áður um 17,3% hlut í bankanum að nafnvirði um 960 milljónir. Margrét á í dag um 8,2% hlut í bankanum.