Skúli Hrafn Harðarson, forstöðumaður eigin viðskipta MP banka, hefur verið ráðinn sjóðstjóri fagfjárfestasjóða hjá Júpíter. Þetta kemur fram á vefsíðu fyrirtækisins .

Skúli tekur við af Styrmi Guðmundssyni sem lét af störfum fyrir skömmu. Skúli hefur starfað í eigin viðskiptum MP banka frá því í desember 2008 en starfaði áður í eigin viðskiptum Saga fjárfestingarbanka.

Hann er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann mun hefja störf hjá Júpíter 1. júní næstkomandi.