„Stemningin er stórkostleg,“ segir Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, sem staddur er í Zagreb í Króatíu á leið á landsleik Íslands og Króatíu í kvöld.

Skipulag og sala á ferðinni var alfarið gerð af ferðaskrifstofunni Úrval Útsýn sem leigði vél hjá Wow air og seldi öll sætin.

Hann segir vélina hafa verið stútfulla á leiðinni út. „Það er mikill hugur í mönnum og við erum byrjuð að undirbúa ferðina til Brasilíu“, segir Skúli og bætir við léttur í lund að hann sé fararstjórinn í ferðinni. Hann keypti sjálfur ferðina hjá Úrval Útsýn.

Leikurinn verður sýndur á RÚV og hefst klukkan 19.15.